|
Hugtök
Ferhyrningur
- Marghyrningur með fjögur horn. Til dæmis:

Ferningur -
Marghyrningur með fjögur rétt horn og allar
hliðar jafnlangar. Til dæmis:

Fimmhyrningur
- Marghyrningur með fimm horn. Til dæmis:

Flutningar -
Speglun, hliðrun og snúningur eru dæmi um
flutninga.
Gleitt horn
- Horn sem er á milli 90° og 180°. Til dæmis:

Grafík
– Orðið grafík er af grískum uppruna og merkir að skrifa eða teikna. Í grafík er
unnið á ákveðinn flöt, teiknað, grafið eða skorið er í flötinn, litur settur þar á og honum þrykkt yfir á annan
flöt. Helstu aðferðirnar eru trérista, litógrafía, dúkrista, sáldþrykk
(silkiprent) og æting ásamt pappaþrykki og límþrykki.
Hliðrun - Hliðrun er flutningur þar sem
mynd er færð til án þess að henni sé snúið eða
speglað.
Allir punktar
myndarinnar flytjast
um sömu fjarlægð og
í sömu stefnu. Til
dæmis:

Horn -
Horn myndast þegar tvö strik eða tvær línur mætast. Horn geta verið hvöss, rétt
eða gleið.
Hornrétt - Þegar tvær línur eða
tvö strik skerast þannig að hornin þar sem þær skerast eru
öll 90°. Til dæmis:

Hvasst horn
- Horn sem er á milli 0° og 90°. Til dæmis:

Efst á síðu
Jafnarma þríhyrningur
- Þríhyrningur með 2 hliðar jafnlangar. Til dæmis:

Jafnhliða þríhyrningur
- Þríhyrningur með allar hliðar jafnlangar og öll horn jafnstór. Til dæmis:

Krans -
Mynstureining sem er endurtekin í hring.
Lárétt -
Það sem liggur eins og sjóndeildarhringurinn (eða frá hægri til vinstri). Til
dæmis lárétt strik:

Lína - Lína sem hefur hvorki
upphaf né enda.
Lóðrétt -
Það sem liggur eins og band sem heldur lóði hangandi. Til dæmis lóðrétt strik:

Marghyrningur
- Tvívítt form (flatarmynd) afmarkað af beinum línum. Draga nafn sitt af fjölda
horna, t.d. þríhyrningur,
ferhyrningur, fimmhyrningur.
Myndskoðun – Ýmsar aðferðir eru til við
myndskoðun eða myndgreiningu, t.d. formskoðun,
túlkun innihalds, skoðun í samhengi við líf og
störf listamannsins.
Mynstur -
er byggt upp af
ákveðinni mynstureiningu sem er endurtekin aftur og aftur, reglulega eða
óreglulega.
Mynsturborðar
- Mynstureining sem er
endurtekin í eina átt (t.d. til hægri eða vinstri).
Mynstureining
- Grunnmynd sem er speglað, hliðrað eða snúið til að mynda mynstur
Óreglulegur
marghyrningur - Tvívítt form (flatarmynd)
sem hefur hvorki öll horn jafnstór né allar hliðar
jafnlangar. Til dæmis:

Efst á síðu
Reglulegur marghyrningur -
Tvívítt form (flatarmynd) sem hefur öll horn jafnstór og
allar hliðar jafnlangar, t.d. jafnhliða þríhyrningur og
ferningur:

Rétt horn
- Horn sem er 90°.
Samhverfur
- Þegar mynd lítur eins út eftir að henni hefur verið speglað eða snúið um
sjálfa sig, þá er hún samhverf. Speglunarásar eða snúningsmiðjur samhverfra
mynda eru í myndunum sjálfum.
Samsetningar flutninga
- Þegar fleiri en einn flutningur er notaður.
Samsíða -
Tvær línur eða tvö strik sem liggja í nákvæmlega sömu átt og skerast ekki.
Samsvarandi - T.d. þegar þú
horfir í spegil, þá speglast andlit þitt og þú sérð auga sem
er samsvarandi hægra auga þínu og annað sem er samsvarandi
vinstra auga.
Snúningur
-
Snúningur
er flutningur þar sem mynd er snúið um punkt.
Yfirleitt er snúið rangsælis, nema annað sé
tekið fram.
Speglun - Speglun er flutningur
sem varpar mynd um speglunarás yfir í spegilmynd
sína.
Spegilmyndin er
jafnlangt frá
speglunarásnum og
upprunalega myndin.
Ef lína er dregin á
milli tveggja
samsvarandi punkta
myndarinnar verður
sú lína hornrétt á
speglunarásinn.
Speglunarás
- Lína sem er speglað um. Ímyndaðu þér blað skipt til helminga og á annan
helminginn er máluð mynd. Á meðan málningin er ennþá blaut er blaðið brotið
saman um helmingalínuna og þannig speglast myndin. Helmingalínan er þá
speglunarásinn.
Strik - Strik sem liggur á milli
tveggja endapunkta.
Trapisa -
Marghyrningur með fjögur horn og að minnsta kosti tvær hliðar samsíða. Til
dæmis:

Tvívídd - Tvær
víddir í fleti, þ.e. lengd og breidd. T.d. mynd
af stól.
Veggfóðursmynstur
- Mynstureining sem endurtekur sig í fleiri en eina átt.
Þríhyrningur
- Marghyrningur með þrjú horn.
Þrívídd - Þrjár
víddir í rými, þ.e. lengd, breidd og hæð. T.d.
(alvöru)
stóll.
Þökun - Að þekja
flöt með marghyrningum.
Efst á síðu
|